Leit

Fjölskildan

Jæa allt að gerast

05. janúar 2009 klukkan 02:26
Gleðilegt nýtt ár allir voan að þið hafið átt ánæjuleg jól og áramót.

Ja þetta var allavega æðislegt hjá mér var á Húsvík á Aðfangadag og og svo í sveitini hjá ömmu hans Alla á jóladag fórum svo aftur á Húsavíkog framm til 28 des. stoppuðum á Dalvík hjá afa og ömmu í mat.  Eyddum síðan áramótunum í nesainu og það má nú seiga að Alli hafi komið öllum á óvart eftir skaupið, hann dró mig inní herbergi fór niður á eitt hné og bað mig um að giftast sér auðvitað sagði ég já en mér brá svo að ég skalf í svona klukkutíma á eftir Hringurinn er æðislegur. Við erum ekki búin að ákveða dagin enþá en stefnum á sumarbrúðkaup 2010 Laughing
Annars ekki mikið meira að frétta af mér kem með meira seinna
bæ á meðan

jóla jóli

02. desember 2008 klukkan 22:30
Jamm og já mín er alveg að detta í jólafílinginn er búin að kaupa næstum allar jólagjafirnar, búin að baka smákökur þannig að endilega kíka í heimsókn Wink
Það er mikið að gera í vinnuni og ég er birjuð í ræktini á fullu og ég get ekki beðið eftir 13 des. þá ætlar kallin að bjóða mér út að borða og ætlum við að eiða deiginum í eikka rómó væmið ég veit en hey ég á afmæli 15 des. og þetta er svona eiginlega að halda uppá afmælið.

ég veit eiginlega ekki hvað ég á að seiga meira í bili svo ég kveð bara að sinni
og ég vil fara að sjá eithverja kvitta hérna hmmm
en hafið þið það gott og þangað til næst
bæbæ

Allt eithvað svo kósí

09. september 2008 klukkan 19:45
Jæjæ ætli það sé ekki best að seiga ykkur eithverjar fréttir við erum byrjuð að búa jájá maður er bara orðinn fullorðinn heheUllandi
Við búum á Nýbýlavegi 40 í rosalega kósí íbúð og er þetta alveg æðislegt og rólegt ég er alveg að fíla þetta.
(endilega allir að kíka í heimsóknGlottandi reindar gott að hringja á undan tila ð vera viss um að við séum heima hehe.

Það er nú ekki mikið meira að frétta núna er bara að vinna og vinna og sofa og koma mér fyrir.

Jú vá ég er að plata hann pabbi minn héllt uppá 50 ára afmælið sitt 23. ágúst síðastliðinn og ekki nó með það að kallin haldi garðpartí heldur láta Mamma og Pabbi pússa sig saman í veisluni án þess að nokkur vissi nema afar mínir, Talandi umm að koma manni á óvart hehe.

En já hef ekki meira að seiga núna
þangað til næst bæbæ
og endileg kíkið í heimsókn Hlæjandi

Allt að ganga upp

11. ágúst 2008 klukkan 00:12
já það er eithvernveiginn allt að ganga upp mér tókst að ná prófinu mínu og var með hæstu einkun eða svo er mér sagt þótt að við fáum ekki að sjá hana í tölum við fáum bara á skjalinu að við höfum ná og hvort við vorum yfir meðallagi á mínu stóðst prófið með príði eða eithvað svoleiðiss ef ég reini ða þiða þetta yfir á íslensku þannig að ég er orðin vínsérfæðingur jibbí það tókstHlæjandi

svo hinar fréttirnar eru þær að ég og Alli erum að fara að leiga okkur íbúð saman við fórum í kvöld og skoðuðum eina og hún var æðisleg og við vonum að við fáum hana, fáum að vita það á morgun ég get ekki beðiðHlæjandi

En já læt ykkur vita hvernig gengur með íbúðina
þangað til þá
bæbæHlæjandi

Sumarfríið búið

15. júlí 2008 klukkan 00:29
Jæja þá er sumarfríið búið og ég er byrjuð aftur að vinna sem er bara ágæt er að vinna með svo æðislegu fólki Hlæjandi
Fríið var æðislegt fórum til Parísar í viku og vá hvað það var gaman við fórum rosa fínt út að borða held að ég hafi aldrei lent í annari eins þjónustu og mat þetta var bara æði. svo tókum við nú líka allan túrista pakkan á þetta fórum í effelturnin og allt þetta.
Við vorum svo rómó að sumir gætu ælt yfir væmnini hehe neinei ég seigi bara svonaGlottandi
Eftir að við komum heim fórum við norður og heimsótum öll settin af ömmunum og öfunum nema nátúrulega þeim í Borgarnesi fórum í bústað eina helgi með vinum hanns Alla sem var rosa gaman, enduðum síðan fríið í nesinu hjá mömmu og elduðum góðan mat á afmælinu hennar eða meira svona kvöldið áður hehe og feingum okkur svo koktela og sátum úti í góða veðrinu við arininn voða kósíHlæjandi

Annað er nú ekki að frétta eins og er, ég er enþá að bíða eftir einkuninni minni úr prófinu átti að fá hana í síðustu viku en konan sem fær póstin er í sumarfríi og kemur ekki aftur fyrr en eftir versló vona samt að ég þurfi ekki að bíða svo leingi.

læt ykkur vita hvort ég náði en þangað til
bæbæ 

p.s.
er búin að setja inn nokkrar myndir frá parís
Hlæjandi

jæja þá er það loksins búið :D

18. maí 2008 klukkan 01:11
jibbí ég er loksins búin í Wset prófinu og get andað léttar Hlæjandi Þetta gékk bara ágætlega held ég, fæ samt ekki að vita hvort ég hafi náð fyrr en eftir minst 8 vikur sem er svoldið langt Skömmustulegur
En hey þíðir lítið að hugsa um það fyrr en seinna.
Það fer að stitast í París og mig farið að hlakka rosalega mikið tilBrosandi

en hey bara svona að láta vita að ég er á lífi skrifa meira seinna
bæjó

Veit ég er búin að vera löt

14. apríl 2008 klukkan 21:57
HæHæ ég veit að ég er búin að vera löt  en þar er bara búið að vera brjálað að gera hjá mér í vinnu og námi.
Það sem er svosem að frétta af mér er það að ég er að fara í próf í vínsérfæðináminu í maí  ég held að það eigi að vera 13 en það er samt ekki alveg búið að festa dagin.
Þær frétir sem eru kanski skemtilegastar eru þær að ég og Alli ætlum að skella okkur til Parísar í viku í júni og ég hlakka alveg rosalega mikið tilHlæjandi Ég meina hugsið ykkur öll vínin sem ég á eftir að smakka og svo er stefnan sett á Champagne héraðið og ætlum við að eiða einum deigi að þar við að smakka kampavín mmmmm. ég fæ bara vatn í muninn straxUllandi hehe ég veit ég er nautnaseggur.

Árshátíðin er núna 26. apríl og verðun hún á Nordica það verður gaman að fara þangað og vera rosa fín og láta fólkið sem ég lærði hjá þjóna mér og borða góðan mat, ég er búin að ákveða fötin og verð í rosalega flottum svörtum kjól með hvítt belti úúú ég verð svo fín hehehe.

En já ég reini að sína smá lit og vera dulegri svo væri líka gaman ef þið mynduð kvitta fyrir ykkur þegar þið eruð að kíkka hingað inn.

en seigum þetta gott í bili bæjóGlottandi

Jæja

04. janúar 2008 klukkan 23:35
Gleðilegt nýtt ár allir!!!
Það er lítið að frétta af mér jólin voru fín og var yndislegt að vera í fríi á jólunum eða það er að seiga aðfangadagskvöld og jóladag hef ekki feingið það í smá tíma ég var hjá mömmu og pabba á jólunum og var Alli fyrir norðan á Húsavík og var ég alein heima milli jóla og nýárs og leiddist alveg rosalega.
Ég var fyrir norðan um áramótin hjá Alla en það leit allt út fyrir það að ég kæmist ekki, Ég átti pantað flut til Akureyrar á sunnudagin um hádeigið en nei það var svo vont veður að öllu flugi var aflýst þann dag og átti að ath. með flug morguninn eftir en þegar veðrið var enþá vont um nóttina var ég farin að efast en þegar ég vaknaði og sá að það var logn þá varð mín aðeins kátari þurfti að vera mætt á flugvöllin um 7 um morgunin og var komin til Akureyrar um hálf 8 um morguninn og allt var æðislegt Hlæjandi

Hef ekki mikið annað að seiga svo ég kveð að sinni

bæbæ

Ég á líka afmæli jibbí

15. desember 2007 klukkan 00:05
hæhæ ætlaði bara svona rétt að kíka ég á neflega afmæli í dag 15 des jibbí orðin 21 árs vá kella bara komin á þrítugsaldurinn vá , hehe
og já ég er búin að finna kjól vííí er rosa flotturHlæjandi
jæja ætlaði bara svona að deila þessu með ykkur 
Afmælisbarnið kveður
Adios
 

Arg þetta er bara rugl!

13. nóvember 2007 klukkan 00:03
Ég er ekkert smá pirruð arg en allavega til að útskíra afhverju ég er svona pirruð þá skulum við byrja á byrjuninni.
Jæja vegna þess að ég er nú ekki að vinna á aðfangadaskvöld eða á jóladag einsog síðusu ár ákvað ég að vera góð við sjálvan mig og kaupa mér jólakjól mig langar í svartan plein kjól sem er samt ekki úr svona jogging efni eða svoleiðis veit ekki alveg hvernig ég á útskíra þetta en allavega ég er búin að þræða kringluna og smáralin og jújú margir flottir kjólar en þegar ég máta þá get ég ekki rent honum yfir brjóstin alveg sama hversu stór hann er arg!
Það er eins og kjólar í dag séu bara hannaðir á brjóstalusar konur ég skil þetta ekki hvað með okkur hinar sem erum nú svona svoldið brjóstagóðar úff allavega gott að koma þessu frá sér ég er nú samt ekki búin að gefast upp nei nei ég finn eithvað á endanum.
Jólin verða eithvað skrítin hjá mér í ár allvega eins og staðan er í dag en samt bara á góðan hátt ég verð heima hjá mömmu og pabba á aðfangadag og jóladag sem verður yndislegt að geta onað pakkana með öllum hinum en ekki ein á jóladag eða annan í jólum, svo er planið að ég fari norður sunnudaginn fyrir gamlárs það er að seiga til Húsavíkur til að geta verið með Alla á áramótunum og ég hlakka bara til.
En talandi um hann Alla þá er ég alveg hugmyndasnauð um hvað ég á að gefa honum í jólagjöf ef þið hafið einhverjar hugmyndir þá endilega deilið þeim.

Ég ætla að enda þetta blogg á því að óska ömmu og afa í Hrísey til hamingju með nýju íbúðina á Dalvík þannig að núna verða þetta amma og afi á Dalvík (svoldið skrítið) en til hamingju amma og afi Koss

Jæja bless bless

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Hver er ég

Ja ég er bara ég en ég heiti Harpa og er ´86 módel :)
Eins og allir vita sem þekja mig þá finst mér bleikur ógislega flottur og þð þíðir ekki neitt að þræta við mig um það.
Það vilja margir meina það að þessi bleiki litur sé það eina sem er kvenlegt við mig því að ég hef alltaf verið frekar mikil strákastelpa það er ég elska fótbolta og held með liverpool í ensku ég hef mikin áhuga á bílum og ölum svona adrenalíníþrótum hehe og svo er öruglega eikka meira.
Ég á heima í rvk. og ég á yndislegan kærasta sem er kallaður Alli :D

Könnun

Ef það æti að líkja mér við persónu úr Friends hver væri ég???

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...